September - Október
Eins og svo margir vita núna þá hef ég stungið af til Thailands í smá tíma. Þannig er mál með vexti að ég var búin að vera með útþrá í circa 10 mánuði, eða alveg síðan ég sneri aftur heim frá Íslandi eftir árs dvöl í Mið Ameríku. Ég ákvað því að nú skyldi ég halda út aftur, í þetta skipti var valið milli Suður Ameríku, Spánar eða Thailands/Asíu. Val mitt var Thailand. Sú ákvörðum kom flestum, þar á meðal sjálfri mér, á óvart því ég hafði alist upp á Íslandi í nærri 20 ár og vissi meira og minna ekkert um þetta blessaða land, sem ég kalla oft ´´Landið hennar múttu‘‘.
Ég tel mig hafa tekið rétta ákvörðun og sé ekki eftir að hafa komið hingað, ég hef lært svo mikið nú þegar, kynnst svo mörgum stöðum í þessu landi og hitt svo marga sem óhætt er að kalla félaga og vini. En án þess að rugla ykkur frekar þá skal ég byrja á að rifja upp ferðalag mitt frá byrjun eða við komu:
Lenti í Thailandi ásamt Sveinbirni, afar kærum vini, 3.september ´07.
Eyddum fyrstu 3 dögunum í höfuðborginni Bangkok, versluðum og skoðuðum nánast öll mollin(sem var mjög þreytandi en jafnframt framandi fyrir okkur Íslendingana sem eigum ekkert nema Kringluna og Smáralind sem varla flokkast undir flokkinn ´´moll´´ á heimsmælikvarðanum) og fengum því netta víðáttubrjálæði. En hér keypti Herra Sveinbjörn FYRSTU(já, ég útskýri nánar hér að neðan) myndavélina sína.
Bangkok: Einkennist af snobbuðu fólki sem minna einna helst á vampírur; jú það er skíthrætt við sólina. Já, Thailendingar hata sólina. Þau forðast hana því það vill alls ekki verða sólbrúnt/brúnna en það er. Það verslar hvíttunarkrem og sápur og Guð forði þeim frá því að fá smá geisla á sig. Þess vegna sérðu flesta Thailendinga/Bangkokbúa annað hvort í bílunum sínum eða inní Mollunum. Mikil mengun er í Bangkok og traffíkin er oft á tíðum óbærileg. 9 milljón manns eru búsettir í Bangkok. Og þér á ALDREi eftir að leiðast hér, hún hefur oftar en ekki verið kölluð Borgin Sem Aldrei Sefur. Oh shit djammlífið sem er hérna á eftir að gera þig veika!! Þegar þú prófar það muntu langa út á djammið hverjum degi!
Héldum við síðan til Khorat, stærstu borgina í Thailandi sem aldrei var sett sem höfuðborg landins, að heimsækja systur mína og eiginmann. Vorum þar í um viku, eyddum tímanum í að versla, keyrðum uppá fjall sem var í senn verndarsvæði fyrir híenur, sléttuúlfa, bavíana, tígrísdýr, fíla og fullt í viðbót.
Vegurinn upp fjallið var bæði mjótt og bratt og hræddi úr mér líftóruna. Það tók okkur um einn klukkutíma að aka upp fjallið að áfangastaðnum og þóttist ég hafa séð litla sæta kanínu við vegkantinn..en kom svo í ljós að þetta var hrúga af fílaskít. How Nice.
Fjallaloftið var ferskt og endurnærandi..eftir að hafa verið í Bangkok í mikilli umferðarmengun þá vildi ég einna helst ekki fara af fjallinu. Skoðuðum fossinn þar og á leiðinni niður fjallveginn vorum við stöðvuð af stórum hópi af frekum og óstýrlátum öpum sem sníktu af okkur mat og fleira.
Daginn eftir fórum við á stórum fleka búnum hátölurum og KARAOKE tæki, sjónvarpi, klósetti(það var bara klósettSKÁL) og eldunaraðstöðu. Eyddum deginum með systu og fullt af vinum hennar og vinnufélögum. Sigldum að frumskógi einum og fórum í smá trekking, í leit að stórfenglegum fossi(var okkur sagt!) en fundum einungis lítinn læk með nokkrum steinhnullungum í...how lame. En fórum ekki fýluferð því þarna rákumst við á fullt af litríkum fiðrildum í stórum hópum og gátum snert þá og kjassað(Sveinbi var mikið fyrir að káfa á þeim..hann vildi helst taka þau heim að kúra). Það sem eftir lifði dags eyddum við í sólbaði og sundi í fljótinu.
Næsta kvöld ákváðum við að fagna örlítið..héldum við því út á næsta pöbb og drukkum því miður allt of mikið, því bjórinn var svo ódýr og einnig því þar unnu stelpur við að hella í glösin og bæta í sem gerði það að verkum að glösin virtust aldrei tæmast. Því miður féllum við útlendingarnir(Sveinbi og ég) fyrir þessu sniðuga business-trick‘i og enduðum ofurölvuð og ælandu út um allt. ÆJÆ
Næsti áfangastaður var strandarbærinn alræmdi; Pattaya, þar sem Sveinbi fékk aldrei frið frá vændiskonunum og lúmsku káfi og kjassi inná skemmtistöðunum. Þar á meðal inná LÚSíFERS og TONY'S. En það er óhætt að segja að Sveinbi var tilbeðinn og dáður af vændiskonunum í Pattaya, en ég yrði alls ekki hissa þó þarna fyndist Aðdáendaklúbbur tileinkaður honum Sveinbirni Magnússyni, aka The Fan Club of SVEN the STUD.
Eyddum heilum mánuði þar(okkur báðum til furðu að hafa endst svo lengi í þessum rotnum bæ
en Sveinbi fann sér dægrastyttingu, Muay Thai/Thai box. Góður. Ég hafði hinsvegar ekkert að gera..nema fara seint að sofa og vakna snemma. Hinsvegar kynntist ég fólki þar sem mér þótti afar vænt um, en því miður endaði það illa...
Pattaya: einkennist af vændiskonum, dópsölum, spilltum löggum, Amerískum skyndibitastöðum, klæð- og kynskyptingum, samkynhneigðum strákum sem stunduðu vændi og gömlum kynsveltum köllum sem fengu ekkert action í sínu heimalandi. EN strendurnar voru alveg ágætar..og eyddi ég því flestöllum dögunum með bók í hönd á ströndinni eða sötrandi kaffi í Starbucks.
Eftir 4 vikur í þessum sorabænum skildum við farangurinn eftir hjá Kidda(vininn hans pabba), keyptum okkur bakpoka og héldum til hafnar/strandarbæjarins Hua Hin. Eyddum 5 dögum þar og skemmtum okkur vel við að láta okkur leiðast og njóta sjávarréttarins, en hann var svo ferskur að mig grunar að þeir hafi veitt í matinn meðan við pöntuðum. Stakk ég svo uppá því að leigja skellinöðru, var korter að læra að starta á því, var VARLA farin úr götunni þar sem leigan var þegar ég hvolfdi því næstum! greyið stúlkan sem leigði mér hjólið fékk nett áfall..
Hua Hin: Afar huggulegur, snyrtilegur bær við ströndina. Strendurnar voru gullfallegar og náttúran óaðfinnanleg. Fólkið hlýtt og hjálpsamlegt.
Eftir þetta fórum við til Surat Thani, enn sunnar á landinu í áttina að eyjunni Koh Pha-ngan en þar á sér stað hið víðfræga FULL MOON party í hverjum mánuði. Tókum rútu að Surat Thani, svo ferju frá Surat til Koh Pha-ngan og eyddum næstum viku þar. Í rútunni kynntist ég alveg magnaðri stelpu að nafni NiNA, frá Bankaríkjunum, og erum við að hittast oft í viku því hún er einnig nýflutt til Bangkok, eins og ég. Byrjuðum á því að fara á dýrt hótel, sem ég var plötuð til að panta eftir að ferðaskrifstofan hræddi úr mér líftóruna með sögum af fólki sem fara einungis nokkrum dögum fyrir partýið að það fékkst engin gisting fyrir þau! ..og auðvitað kom í ljós að það var rugl(bölvaðir Thailandingar! joke) en við vorum lengst frá öllu fjörinu og þurftum að borga hellings pening í taxa til að komast til og frá ‘‘siðmenningunni‘‘ á eyjunni. Við skiptum svo loks um hótel og það gamla varð svo fúlt útí okkur að það sakaði okkur um að hafa stolið handklæðum!! WTF...ég endaði í hörku rifrildi við þau seinna meir en það endaði allt ágætlega(enginn slasaðist það alvarlega.) 
Koh Pha-ngan: Túrista paradís..stútfullt af ungum(og FALLEGUM) túristum, þessum Billabong og Element týpum(yummy!) og eyjabúar finna uppá allskonar partý til að halda þessum ungu túristum við, t.d. með villtum partýum nánast á hverju kvöldi.
Dæmi um eitt var Sundlaugarpartý sem við Sveinbi skelltum okkur á, en þar var techno og transtónlist, sundlaug fullt af ungu fólki að gera Guð-veit-hvað og neon-málningarkrukkur sem voru látin ganga og enduðu allir útúrkrotaðir í sjálfslýsandi málningu(sem næst með erfiðum hætti úr flíkum eftir 7 þvotti..trúið mér
). Ég ákvað að skella mér heim um 3 leytið en Sveinbi hafði fundið marga félaga og neitaði að halda heim. Á leiðinni úr partýinu hitti ég flottan fola og endaði ´´einhvernvegin´´ ofaní sundlaug með honum og hans vinum en það entist ekki lengi(eins og flestallt annað hjá MÉR) og fór ég heim drulluþreytt og ölvuð.
Daginn eftir rakst ég af tilviljun á Sveinba, en ég hafði tekið eftir því að hann hafði ekki snúið heim í kofann/Bungalow‘inn okkar um kvöldið, og var hann skólaus, MYNDAVÉLALAUS og útúrbitinn af moskítóflugum. Hann útskýrði svo fyrir mér, en þó með naumindum að hann gat það vegna þreytu og vegna þess að hann var enn fullur, að hann hefði týnt myndavélinni, sandölunum og peningunum sínum og hafði vaknað útí FRUMSKÓGi einhversstaðar í litlum trjákofa/trjáskýli! Úff..
En allt endaði þó vel og í staðin fyrir að leggjast í þunglyndi og láta gremjuna stjórna sér þá ákvað hann að láta sér þetta að kenningu verða og leit á björtu hliðarnar. Góður! En hann var samt sem áður svekktur yfir að hafa ekki verið nauðgað af einhverri heitri gellu..well við fáum ekki allt sem við óskum okkur, Sveinbi minn.
Full Moon partýið var haldið á ströndinni þar sem voru nokkur þúsund fullir túristar, auk Thailenskra vasaþjófa, og fullt af áfengisbásum, auk þess snéru allir barirnir hátölurum sínum i áttina að ströndinni og eftir því sem þú gékkst gastu fundið allt frá REGGAE tónlist að rokki og HipHop. Einnig var þar eitt svæði á ströndinni gyrt af og höfðu öryggisverðir raðað sér í kringum, en þetta var svæðið fyrir þá sem höfðu dáið áfengisdauða eða vildu bara fá sér blund. Sumir náðu því miður ekki að skríða þangað í tæka tíð og dóu á ströndinni en þá redduðu verðirnir því bara með því að draga þá inná gyrta svæðið..sniðugt.
En partý þetta hélt áfram til morguns og þegar við vöknuðum næsta dag(segjum eftir hádegi) gátum við enn séð fullt af ölvuðu fólk á reiki og suma ennþá sötrandi á ströndinni.Við Sveinbi ákváðum að fara snemma heim því einhvernvegin var þetta ekki eins sérstakt og við höfðum haldið. En ég fer POTTÞÉTT aftur þangað og ÞÁ verður sko djammað! Daginn eftir partýið alræmda héldum við útá strönd og spiluðum fótbolta og ég notaði tækifærið til að pissa í sjóinn. Djók..sem betur fer hef ég enn ágæta stjórn á hægðunum.
Fyrr um daginn hafði ég fengið mitt alfyrsta húðflúr! Það sérstaka við það var að það var ekki notast við þessa venjulegu nál sem stungið er í samband eins og allstaðar, en Tattoo'ið sem ég fékk mér var gert með ævafornum Thailenskum hætti, með tálguðum BAMBUS-viði (eins og myndin hér að neðan sýnir fékk Angelina Jolie sér einnig tattoo með þessum hætti) :
og hér:

.....hvar MiTT er staðsett er hinvegar leyndarmál 
Eftir þessa dvöl á Partý-eyjunni var förinni haldið til Bangkok með lest, en við ferðuðumst á fyrsta farrýminu(You know how it iiis..) þar sem við fengum okkar eigin rúm/sæti sem voru lögð niður og VoiLá! Þar fáiði rúm! En auk þess voru þar dökk tjöld fyrir þannig að hver og einn fékk algjöra næði. Ferð þessi tók okkur um 11 klst. Í Bangkok átti ég von á mína eigin íbúð og átti að byrja að vinna á íslenskri ferðaskrifstofu innan tíðar.
Sveinbi pantaði flug heim 2.nóvember en þann 31.október(Hrekkjavökunni) fórum við Sveinbi(klæddur sem Íslenskur túristi, með öðrum orðum; hann nennti ekki í búning..CAN YOU SAY félagsskítuuur..) og Nina(sem Amy Winehouse) og ég(misheppnuð fótbolta´´´gella´´ ) á vinsælustu ferðamannagötuna í Bangkok, Soi Khao San/Hrísgrjónagatan. Djömmuðum vel og lengi og fórum heim um 5:30, en ég vil taka fram að samkvæmt lögum skulu allir skemmtistaðir lokaðir klukkan 02:00 hér á landi.
Daginn eftir eyddum við Sveinbi í að versla nýja myndavél, CANON 400, ég vann Canon prentara í einhverju happdrætti(var tekin mynd af mér og allt, en veit ekkert fyrir hvað eða hvert hún endaði) og Sveinbi kláraði að versla. Svo fórum við útá flugvöll og þannig endar hans kafli í Thailandi.
Ég nenni ekki að fara útí öll smáatriðin eftir það svo að ég segi ykkur bara það helsta í punktum:
· Ég kynntist breskum pilti sem mér þótti mjög vænt um en því miður gekk það ekki upp.
· Við Nina höfum verið að hittast oft, farið út að borða, kanna nýja skemmtistaði, farið í DRUNKEN KARAOKE og margt fleira.
· Ég byrjaði að vinna hjá Óríental, íslenskri ferðaskrifstofu; www.oriental.is .
· Eignaðist nokkra nýja kunningja.
· Fæ mjög mikla aðstoð hjá yfirmanninum og fjöldskyldu hans, en þau hafa reynst mér afar vel og veita mér ráðgjöf og alla hjálp sem mig vantar.
· Er orðin háð Starbucks.
· Verslað eins og mo-fo..en er hætt því núna.
· Lagðist í þunglyndi í viku, en er komin yfir það.
· Búin að læra meiri Thailensku(Jei!)
· Er orðin vel SÓLBRÚN(sem er víst alls ekki í tísku í Thailandi haha alltaf jafn óvinsæl hvert sem er í heiminum, Angie mín haha), en hér nota allir, konur sem karlar, hvíttunarkrem(shiit..)
· Hef SO FAR ekki rekið augun á neinn myndarlegan Thailenskan karlmann.
· Ávarpa mig margir á ENSKU, meira að segja EFTiR að ég byrja að tala við það á Thailensku! (WTF people!?)
· Á officially ALLT OF MiKIÐ af ADiDAS, PUMA og NiKE.
· Finnst ég vera að þyngjast..veit ekki hvort það sé í hausnum á mér eða ekki.
Fylgist endilega með ''PROJECT THAiLAND'' hér á þessari síðu og ég mun birta fleiri dagbókarfærslur innan tíðar